Lög um RNSA, 35. gr.
Leita
English language on BIRK ATC frequencies
Tillaga í öryggisátt
The ITSB recommends that ICETRA reviews Iceland AIP GEN 3.4.3.4 for BIRK and recommend that English is always used for ATC radio communications when at least one airplane on the ground and/or tower frequencies communicates in English.
Afgreiðsla
Samgöngustofa tók á tillögunni á eftirfarandi hátt:
Í lokaskýrslu um alvarlegt flugatvik N525FF á Reykjavíkurflugvelli 11. Janúar 2018 og gefin var út 7. Febrúar 2019 beinir RNSA til Samgöngustofu eftirfarandi tillögu í öryggisátt:
„The ITSB recommends that ICETRA reviews Iceland AIP GEN 3.4.3.4 for BIRK and recommend that English is always used for ATC radio communications when at least one airplane on the ground and/or tower frequencies communicates in English.“
Samkvæmt AIP BIRK AD 2.17 þá er flugumferðarþjónusta innan flugstjórnarsviðs Reykjavíkurflugvallar veitt á bæði ensku og íslensku. Þetta þýðir að ekki er gerð krafa um enskuhæfni fyrir flugmenn sem fljúga innan flugstjórnarsviðsins enda geta þeir þegið flugstjórnarþjónustu á íslensku. Þá er ekki gerð krafa í íslenskum reglum að einkaflugmenn hafi hæfni til að tala ensku og með því að setja þá takmörkun að eingöngu skuli nota ensku ef eitt loftfar á tíðninni kýs að nota ensku, þá er verið að útiloka að hægt sé að veita flugumferðarþjónustu til þeirra sem ekki tala ensku.
Með vísan í ofangreint, þá er ekki hægt að tryggja að allir flugmenn geti talað ensku innan flugstjórnarsviðs Reykjavíkurflugvallar og telur Samgöngustofa því ekki mögulegt að bregðast við þessum tilmælum með að innleiða þessa kröfu. Samgöngustofa vill þó benda á sem mildun að samkvæmt upplýsingum frá Isavia, þá er viðhaft vinnulag nú þegar við ATS í BIRK CTR, að þegar enskumælandi flugmenn sem ekki tala íslensku eru á bylgjunni þá er leitast við að nota ensku eingöngu. Þetta er þó óskrifað verklag og lagt í hendur þeirra sem sinna flugumferðarþjónustu að meta aðstæður hverju sinni.
Formal procedure between snow removal supervisors and ATCO
Tillaga í öryggisátt
The ITSB recommends that Isavia considers implementing a formal procedure between snow removal supervisors and the ATCOs.
Afgreiðsla
Isavia hefur gefið út vinnuleiðbeiningar VL710 57 kafli 3 sem taka til þessa atriðis.
Kafli 3 Ábyrgð á framkvæmd ástandsmats
Framkvæmd ástandsmat er alfarið á ábyrgð flugvallarstarfsmanna og ber að gefa upplýsingar um nýtt mat til turns eða AFIS eins og við á í gegnum síma eða á tíðni eftir því sem hentar betur.
Þegar SNOWTAM er útgefið nægir að láta vita um útgáfuna en þegar ekki er þörf á útgáfu SNOWTAM skal hringja/kalla með ástandskóða hvers flugbrautarþriðjungs (6 eða 5) og tegund þekju (DRY eða WET).
Grouping of relevant NOTAMs
Tillaga í öryggisátt
The ITSB recommends that Isavia ANS reconsider the construction of NOTAMs and list of NOTAMs, with the aim of grouping relevant NOTAM information together to simplify the task of pilots.
Afgreiðsla
Isavia ANS hefur brugðist við tillögunni á eftirfarandi hátt:
- Í maí 2017 byrjaði upplýsingaþjónusta flugmála að grúppa saman NOTAM, þegar því var við-komið, í eitt NOTAM þegar um sambærileg viðfangsefni var að ræða. Þetta var gert til að veita notendum betri yfirsýn. Forsendur sameiginlegs NOTAM eru t.d. sami gildistími og sama flugbraut. Hægt er að sameina upplýsingar um akbrautir í eitt NOTAM séu aðrir þættir sameiginlegir.
- Framsetning NOTAM var endurbætt í mars 2021 þegar innleitt var nýtt kerfi. Upplýsingar í línu sem birtir Q-kóða (Qualifiers (Item Q)) er nú að fullu í samræmi við ICAO Doc 10066 Q-kóði auðveldar flokkun fyrir forflugsflugupplýsingar.
- Svæði sem verða fyrir áhrifum verða framvegis auðkennd með hnitum og radíus. Ekki er lengur mögulegt að senda út NOTAM án hnita eða radíus.
SIGMETs given higher priority in flight documents
Tillaga í öryggisátt
Update flight planning procedure, in such a way that Significant Meteorological Information (SIGMET) that affect the flight are given higher priority in the flight documents.
Afgreiðsla
With the implementation of the Lido flight planning system in may 2020 SIGMETS are now displayed on the same page as the destination weather increasing the visibility of this important information.
Graphical representation of SIGMETs in flight documents
Tillaga í öryggisátt
Update its flight documents to include graphical data showing the boundaries of active SIGMETs to make it easier for flight crews to visualize.
Afgreiðsla
Sigmet are now graphically displayed in the Lido eRoute manual in the EFB.
Flugmenn framkvæmi reglulega RNAV aðflug
Tillaga í öryggisátt
RNSA beinir eftirfarandi tillögum í öryggisátt til Icelandair:
- Að félagið hvetji flugmenn sína til þess að nota reglulega RNAV aðflug.
Afgreiðsla
Icelandair: Þjálfunardeild Icelandair hefur síðan RNAV aðflug voru innleidd lagt gríðarlega áherslu á framkvæmd RNAV aðfluga í síþjálfunn í flughermi. Framkvæmd á RNAV aðflugum hefur verið tekin fyrir í öllum hæfnisprófum síðan þessi tegund aðfluga var innleiddur.
Uppfæra hraða í flugtölvum við undirbúning aðflugs
Tillaga í öryggisátt
RNSA beinir eftirfarandi tillögum í öryggisátt til Icelandair:
- Að félagið íhugi að yfirfara verklagsleiðbeiningar þannig að flugmenn félagsins uppfæri hraða í flugtölvum við undirbúning aðflugs, í samræmi við hleðslu flugvélar og veðuraðstæður, þannig að hraðar sjálfstýringarbúnaðar séu rétt upp settir fyrir aðflug.
Afgreiðsla
Óafgreitt af Icelandair.
Takmarka fjölda tímabundinna breytinga á SOP
Tillaga í öryggisátt
RNSA beinir eftirfarandi tillögum í öryggisátt til Icelandair:
- Að félagið hugi að því að takmarka fjölda tímabundinna breytinga á staðlaðri flughandbók (SOP) á milli skipulagðra hálfsársútgáfa, til þess að gefa flugmönnum færi á að meðtaka breytingarnar.
Afgreiðsla
Icelandair hefur síðan 2018 ekki gert tímabundnar breytingar á SOP (temporary revision).
Uppfæra framsetningu á NOTAMs
Tillaga í öryggisátt
RNSA beinir eftirfarandi tillögum í öryggisátt til Samgöngustofu:
- Með tilliti til útbreiddrar nútímatækni við myndræna upplýsingaöflun leggur RNSA til að Samgöngustofa beiti sér fyrir á alþjóðavettvangi (hjá ICAO) að framsetning NOTAM sé uppfærð yfir á myndrænt form, þar sem það á við.
Afgreiðsla
Óafgreitt af Samgöngustofu.
Uppfæra framsetningu á SIGMET
Tillaga í öryggisátt
RNSA beinir eftirfarandi tillögum í öryggisátt til Samgöngustofu:
- Með tilliti til útbreiddrar nútímatækni við myndræna upplýsingaöflun leggur RNSA til að Samgöngustofa beiti sér fyrir á alþjóðavettvangi (hjá ICAO) að framsetning á upplýsingarflæði til flugmanna sé uppfærð með myndrænni framsetningu þeirra svæða sem SIGMET skeyti eiga við.
Afgreiðsla
Óafgreitt af Samgöngustofu.