2025 Síða 2

Uppfæra loftrými við BIRK

Flug
Nr. máls: 24-057F016
Staða máls: Lokuð
23.10.2025

Tillaga í öryggisátt

Rannsóknarnefnd samgönguslysa beinir því til Samgöngustofu að  meta hvort þörf sé á að uppfæra loftrýmið í kringum Reykjavíkurflugvöll úr loftrýmisflokki D yfir í loftrýmisflokk C.

Afgreiðsla

Samgöngustofa hefur lokið mati á tillögunni með ítarlegri öryggisgreiningu (safety assessment). Niðurstaða Samgöngustofu var að leggja ekki til endurflokkun loftrýmisins á þessu stigi.

Notkunarmörk afísingarvökva

Flug
Nr. máls: 24-072F019
Staða máls: Lokuð
20.11.2025

Tillaga í öryggisátt

RNSA beinir því til Norlandair, að fara yfir með flugmönnum og afgreiðslumönnum notkunarmörk mismunandi upplausna afísingarvökva, bæði er varðar hreinsun (de-icing) og vörn (anti-icing).

Afgreiðsla

Norlandair hefur gefið út Safety Information letter 2025-2, De-/anti-icing Beechcraft King Air aircraft using Type II fluid, þar sem tekið er á efni tillögunnar.