Lög um RNSA, 35. gr.
Leita
Verklag aðflugsstjórnar á Akureyrarflugvelli
Tillaga í öryggisátt
RNSA beinir því til ISAVIA að yfirfara verkferla við aðflugsstjórn á Akureyri og skoða hvort þörf sé á breyttu verklagi og búnaði við þá þjónustu.
Afgreiðsla
Frá því atvikið átti sér stað 2009 hefur Isavia lagt í talsverða vinnu við uppfærslu á verklagi og búnaði fyrir þá aðflugsþjónustu sem veitt er á Akureyri. Má þar nefna m.a.:
- 2011 voru skilgreind og gefin út verklög vegna radaraðfluga
- 2013 var útbúið verklag um daglega prófun á virkni ratsjár
- 2014 var ratsjá endurnýjuð að miklu leiti
- 2017 upptaka ratsjárgagna innleidd
Ratsjársvarar sem gefa upp málþrýstingshæð
Tillaga í öryggisátt
RNSA vill árétta tillögu sem RNF gerði við rannsókn á flugumferðaatviki TF-FTZ og TF-JMB sem varð norður af Viðey 30. september 2008 (M-05908/AIG-18):
- Rannsóknarnefnd flugslysa beinir því til Flugmálastjórnar Íslands að hún setji kröfur um að flugvélar í sjónflugi í flugstjórnarsviðum flugvalla á Íslandi séu búnar ratsjársvara sem gefur upp málþrýstingshæð.
Afgreiðsla
Óafgreitt af Samgöngustofu
Úttekt á samsetningu
Tillaga í öryggisátt
Rannsóknarnefnd samgönguslysa leggur til við Svifflugfélag Akureyrar að verkferlar fyrir samsetningu svifflugvéla krefjist þess að aðili sem ekki kom að samsetningunni taki verkið út.
Afgreiðsla
Svifflugfélagi Akureyrar hefur sett sér eftirfarandi verklag:
Eftir samsetningu þá skal annar aðili fara yfir allar tengingar og sannreyna að vélin sé rétt samansett. Sú skoðun má fara fram áður en lok eða límband eru sett yfir tengingar.
Verklag um samsetningu
Tillaga í öryggisátt
Rannsóknarnefnd samgönguslysa leggur til að Svifflugfélag Akureyrar setji upp skriflega verkferla fyrir samsetningu svifflugvéla í sinni umsjá og tryggi að þeim sé fylgt.
Afgreiðsla
Svifflugfélagi Akureyrar hefur sett upp eftirfarandi verklag:
Samsetning á svifflugum skal framkvæmd af vönum aðila og eftir handbók viðkomandi vélar. Ef kostur er þá skal vanur maður velja annan aðila til þjálfunar við samsetningu til að tryggja að sem flestir kunni rétt til verka. Einungis einn aðili ber ábyrgð á samsetningunni. Ef ekki er kostur á vönum manni við samsetningu til dæmis ef um nýja vél er að ræða þá skal vélin sett saman eftir handbók vélarinnar en ætíð skal leitast eftir því að fá leiðbeiningar og sýnikennslu um samsetningu áður en tekið er á móti nýrri vél.
Það sem hafa ber sérstaklega í huga:
- Alls ekki má trufla aðila sem er að stjórna samsetningunni, ef utanaðkomandi aðilar koma að og eru með spurningar eða annað þá skal þeim bent á að stíga til hliðar þar til samsetningu er lokið. Aðilar í samsetningu skulu ekki láta síma ónáða sig.
- Eftir samsetningu skal prófa sérstaklega vel að allir stýrifletir virki sem skildi (positive control check)
Verklag um eftirlit og slátt grasbrauta
Tillaga í öryggisátt
Rannsóknarnefnd samgönguslysa beinir því til ISAVIA að það endurskoði verklagsreglu VR572 02-1 í rekstrarhandbók með tilliti til setningarinnar „vorverks“ og „að vori“, þar sem að grasbrautir geta vaxið yfir 7 sm frá vorslætti og þurfa reglulegt eftirlit og viðhald yfir sumartímann.
Afgreiðsla
Verklagsregla VR525 01, Eftirliti og rekstur á grasflugbrautum, gefin út í stað verklagsreglu 572-02-1. Í verklagsreglunni er fjallað um að grasspretta megi ekki fara yfir 7cm og skal umsjónamaður flugvallarins fylgjast með sprettunni með því að mæla hæð grassins á nokkrum stöðum á flugvellinum. Reynslan hefur sýnt sig að umsjónarmenn grasflugbrauta okkar slá grasið þegar það er frá 5 og upp í 7 cm á hæð.
Lágmarkshæð við slátt á grasbrautum
Tillaga í öryggisátt
Rannsóknarnefnd samgönguslysa beinir því til ISAVIA að það setji lámarks hæðarviðmið við slátt á grasflugbrautum með hörðu undirlagi vegna hættu á aukinni lendingarvegalengd á slíkum flugbrautum í bleytu.
Afgreiðsla
Málið afgreitt með verklagsleiðbeiningum Isavia.
Áhrif grasbrauta á afkastagetu
Tillaga í öryggisátt
Rannsóknarnefnd samgönguslysa beinir því til Samgöngustofu (áður Flugmálastjórnar Íslands) að hún komi á framfæri leiðbeinandi upplýsingum til flugmanna um áhrif grasbrauta á afkastagetu flugvéla í flugtaki og lendingu.
Afgreiðsla
Samgöngustofa hefur útbúið og gefið út á heimasíðu sinni upplýsingabækling og tilmæli um „Lendingar og flugtök á grasflötum“. Nálgast má efnið undir fræðsluefni fyrir einkaflugmenn á heimasíðu Samgöngustofu eða hér.
Notkunarmörk afísingarvökva
Tillaga í öryggisátt
RNSA beinir því til Norlandair, að fara yfir með flugmönnum og afgreiðslumönnum notkunarmörk mismunandi upplausna afísingarvökva, bæði er varðar hreinsun (de-icing) og vörn (anti-icing).
Afgreiðsla
Norlandair hefur gefið út Safety Information letter 2025-2, De-/anti-icing Beechcraft King Air aircraft using Type II fluid, þar sem tekið er á efni tillögunnar.
Yfirfara afísingarverklag
Tillaga í öryggisátt
RNSA beinir því til afgreiðsluaðila afísingar á Akureyrarflugvelli, að yfirfara verklag við undirbúning afísingar, til að koma í veg fyrir að afísingarvökvi sé notaður í upplausn þar sem hætta er á að hann frjósi. Æskilegt er að verklagið sé yfirfarið fyrir allar starfsstöðvar afgreiðsluaðila afísingar þar sem afísing fer fram.
Afgreiðsla
Verklag varðandi tímasetningu heimilda
Tillaga í öryggisátt
RNSA beinir því til Isavia og Isavia ANS að meta verklag varðandi tímasetningu heimilda.
Afgreiðsla
Málið var aftur yfirfarið og telur Avians verklag í MANOP.S 330.3 TAKE OFF CLEARANCE fullnægjandi og telur ekki þörf á að breyta því enda er til staðar verklag í MANOP.S 330.3 TAKE OFF CLEARANCE og farið var yfir það m.t.t. Starfsemi Avians. Ekki hefur verið tekið upp start up time verklag á stýrðu flugvöllum Avians enda kemur fram í AMC11 ATS.TR.210(a)(3)(a) að það skuli gert "when necessary" og við mat reyndist ekki þörf á því. Varðandi það að halda ATFM brottfarartíma er eftirfarandi verklag til staðar:
o MANOPS 330.3.10 / PANS-ATM 7.9.1 / GM6 ATS.TR.210(a)(3):
Departures shall normally be cleared in the order in which they are ready for take-off, except that deviations may be made from this order of priority to facilitate the maximum number of departures with the least average delay. Factors which should be considered in relation to the departure sequence include, inter alia: (N)
- types of aircraft and their relative performance;
- routes to be followed after take-off;
- any specified minimum departure interval between take-offs;
- need to apply wake turbulence separation minima;
- aircraft which should be afforded priority; and (R)
- aircraft subject to ATFM requirements.
o MANOPS 330.3.10 Note / PANS-ATM 7.9.1 Note 2 / GM7 ATS.TR.210(a)(3):
For aircraft subject to ATFM requirements, it is the responsibility of the pilot and the operator to ensure that the aircraft is ready to taxi in time to meet any required departure time, bearing in mind that once a departure sequence is established on the taxiway system, it can be difficult, and sometimes impossible, to change the order.
- Sjá einnig PANS-ATM 6.3.3.2 b), reyna þó að fara eftir beiðnum operator ef það er mögulegt.
o PANS-ATM 6.3.3.2 If departures are delayed, the delayed flights shall normally be cleared in an order based on their estimated time of departure, except that deviation from this order may be made to:
- a) facilitate the maximum number of departures with the least average delay;
- b) accommodate requests by an operator in respect of that operator’s flights to the extent practicable.