Tillögur í öryggisátt Síða 13

Lög um RNSA, 35. gr.

Reglugerð vegna tilkynningaskyldu köfunarslysa

Flug
Nr. máls: 24-044S016
Staða máls: Opin
16.07.2026

Tillaga í öryggisátt

RNSA beinir því til Innviðaráðuneytisins að það innleiði reglugerð/breytingu er varðar  tilkynningaskyldu og upplýsingagjöf til RNSA vegna köfunarslysa, til samræmis við tilkynningarskyldu sem finna má í 16. grein laga nr. 18/2013 um rannsókn samgönguslysa.

Afgreiðsla

Halda köfunardagbók

Flug
Nr. máls: 24-044S016
Staða máls: Lokuð
16.07.2026

Tillaga í öryggisátt

RNSA beinir því til Sportköfunarskóla Íslands (dive.is) að köfunardagbók sé haldin af  köfunarformanni á vegum fyrirtækisins í samræmi við þær kröfur sem gerðar eru í viðauka I við reglugerð 535/2001.

Afgreiðsla

Sportköfunarskóla Íslands  (Dive.is) hefur tekið upp og innleitt köfunardagbók. Dagbókin er haldin og undir eftirliti vaktstjóra dagsins. Í hana skráir hver leiðsögumaður upplýsingar um þá köfun sem hann bar ábyrgð á, öll hugsanleg frávik eða atvik sem upp kunna að koma, ásamt númeri þeirrar köfunartölvu sem notuð var. Þannig er tryggt að unnt sé að ná í nákvæman köfunar profile úr tölvunni ef þörf krefur.

Uppfæra kögunarbúnað á BIRK

Flug
Nr. máls: 24-031F009
Staða máls: Opin
05.10.2026

Tillaga í öryggisátt

Í tengslum við uppfærslu flugumferðarstjórnar á Reykjavíkurflugvelli yfir í fjarflugumferðarstjórn (remote tower), þá beinir Rannsóknarnefnd samgönguslysa því til Isavia Innanlandsflugvalla ehf og Avians ehf, að uppfæra kögunarbúnað í flugturninum á Reykjavíkurflugvelli, svo unnt sé að nota hann fyrir flugumferð í nærumhverfi Reykjavíkurflugvallar.

Afgreiðsla

Verkferlar um sjónflugsleiðir þyrla

Flug
Nr. máls: 24-031F009
Staða máls: Opin
05.10.2026

Tillaga í öryggisátt

Rannsóknarnefnd samgönguslysa beinir því til Isavia Innanlandsflugvalla ehf og Avians ehf, að meta og/eða endurskoða verkferli um sjónflugsleiðir þyrla og sjá til þess að þeim sé fylgt.

Afgreiðsla

Prevent oil passage blocking during welding operation

Flug
Nr. máls: 25-024F003
Staða máls: Opin
22.10.2026

Tillaga í öryggisátt

SIA- Iceland recommends to Divco to review this investigation report and to incorporate the necessary safety related changes to prevent oil passage blocking from re-occurring during welding operation.

Afgreiðsla

Issue an Advisory Circular or similar guideance

Flug
Nr. máls: 25-024F003
Staða máls: Opin
22.10.2026

Tillaga í öryggisátt

SIA- Iceland recommends to the FAA and EASA to issue an Advisory Circular (AC), or similar lessons learned guidance, highlighting the importance that welding repair operation do not do adverse damage to engine oil passages or other parts of its lubrication system.

Afgreiðsla