Leita að skýrslu
Nýlegar slysa- og atvikaskýrslur:
Herjólfur Bruni í björgunarfari
Ástæða þess að eldur kviknaði í léttbátnum má rekja til þess að eftirlit með honum var ábótavant og ekki í samræmi við reglugerðir fram að atvikinu. Hefði eftirlit með léttbátnum farið fram eins og reglur kveða á um hefði komið í ljós að handslökkvitæki vantaði um borð.
Skýrsla 15.02.202423-075-S-034 Huginn VE 55
Ástæða þess að akkeri skipsins festist í innsiglingunni telur nefndin vera að ekki hafi verið gengið rétt né nægjanlega vel frá akkerisbúnaði skipsins.
Skipstjóri Hugins hafði ekki réttar forsendur til að meta staðsetningu akkerisins þar sem hann vissi ekki að akkeriskeðjan var ekki í réttri lengd.
Samskiptum skipstjórnarmanna og útgerðar var ábótavant.
Þá telur nefndin að staðsetning svo mikilvægra innviða eins og vatnslagna, rafstrengja og ljósleiðarar sé afar óheppileg í innsiglingu til hafnar enda er akkerisbúnaður skipa öryggistæki sem gripið er til við óvæntar aðstæður.
Skýrsla
Tillaga í öryggisátt:
T123075S034 Huginn VE 55
T223-075-S-034 Huginn VE55 17.11.2023