Halda köfunardagbók
Tillaga í öryggisátt
RNSA beinir því til Sportköfunarskóla Íslands (dive.is) að köfunardagbók sé haldin af köfunarformanni á vegum fyrirtækisins í samræmi við þær kröfur sem gerðar eru í viðauka I við reglugerð 535/2001.
Afgreiðsla
Sportköfunarskóla Íslands (Dive.is) hefur tekið upp og innleitt köfunardagbók. Dagbókin er haldin og undir eftirliti vaktstjóra dagsins. Í hana skráir hver leiðsögumaður upplýsingar um þá köfun sem hann bar ábyrgð á, öll hugsanleg frávik eða atvik sem upp kunna að koma, ásamt númeri þeirrar köfunartölvu sem notuð var. Þannig er tryggt að unnt sé að ná í nákvæman köfunar profile úr tölvunni ef þörf krefur.