25-006U001T01. Mat á hálkuvörnum á Þingvallavegi við Álftavatn
Tillaga í öryggisátt
Rannsóknarnefnd samgönguslysa beinir þeirri tillögu til Vegagerðarinnar að endurskoða hálkuvarnir á Þingvallavegi með tilliti til vegarkaflans við Álftavatn.
Á Þingvallavegi á milli Biskupstungnabrautar og vegamóta við Lyngdalsheiðarveg eru nokkrir vegarkaflar hálkuvarðir í hálku og eða flughálku en vegir í þjónustu Vegagerðarinnar eru hálkuvarðir á varasömum stöðum eða við varasamar veðuraðstæður. Slíkir staðir eru á vegarkafla um Írafoss og Ljósafoss, í brekku ofan Kaldárhöfða, á Þingvallavegi við vegamót við Biskupstungnabraut og við vegamót við Lyngdalsheiðarveg.
Á vegarkaflanum um Álftavatn eru aðstæður í landslagi sem auka hættu á glerhálku í vetrarstillum en sá vegarkafli er ekki innan hálkuvarnarþjónustu Vegagerðarinnar. Vegurinn lækkar að vatnsyfirborði Álftavatns þar sem hann liggur næst vatninu. Aukinn raki og lækkun lofthita í stillum tengjast slíkum aðstæðum í landslagi. Því beinir nefndin þeirri tillögu til Vegagerðarinnar að meta hvort sá vegarkafli ætti að tilheyra varasömum stöðum sem falla undir hálkuvarnir.
Afgreiðsla
Hálkuvarnir á vegarkafla á Þingvallavegi við Álftavatn hafa verið
endurskoðaðar. Vegarkaflinn er nú skilgreindur sem varasamur staður sem
skuli hálkuvarinn við hálku og flughálku.
Þá vinnur Vegagerðin að því að kortleggja þá staði þar sem aðstæður hafa breyst þannig að kuldapollar geta myndast en þar eru auknar líkur á launhálku þótt aðrir hlutar vegarins séu hálkulausir. Ástæður geta verið margvíslegar , þ.m.t. vatn í nálægð við veg, trjágróður við veg, vegur í skeringu og háhýsi í grennd við veg. Að lokinni þessari kortlagningu verður metið hvort
niðurstöðurnar gefi tilefni til að endurskoða vinnureglur og framkvæmd
vetrarþjónustu. Á fjölmörgum stöðum á vegakerfinu eru óskir um auknar hálkuvarnir , ljóst er
að auknar hálkuvarnir kalla á aukið fjármagn til vetrarþjónustu.