24-047U016T01. Öryggisúttekt á umferðarmerkjum við einbreiðar brýr
Tillaga í öryggisátt
Rannsóknarnefnd samgönguslysa beinir þeirri tillögu til Vegagerðarinnar að gera öryggisúttekt á umferðarmerkjum á stofn- og tengivegum í nánd við einbreiðar brýr. Athugað verði meðal annars leyfður hámarkshraði og/eða merkingar um leiðbeinandi hraða yfir einbreiðar brýr.
Akstursaðstæður við einbreiðar brýr, þar sem ÁDU er minna en 300 ökutæki, geta verið mismunandi og telur nefndin ástæðu fyrir Vegagerðina að meta þær aðstæður að teknu tilliti til leyfðs hámarkshraða.
Þar sem slysið varð tekur einbreið brú við eftir hættulega[1] vinstri beygju fyrir umferð um Skagaveg í norðurátt. Engin umferðarmerki voru við veginn sem vara við hættum líkt og takmörkun hámarkshraða eða voru leiðbeinandi fyrir umferðina en þessi akstursleið er markaðssett fyrir erlenda ferðamenn sem þekkja ekki aðstæður. Hámarkshraði á veginum var 80 km/klst en vegurinn var 4 metra breiður með einni akrein í báðar áttir og lausamöl í köntum.
Rannsóknarnefnd samgönguslysa telur ástæðu til þess að varanleg lækkun hámarkshraða eða leiðbeiningar um æskilegan hámarkshraða taki til allra einbreiðra brúa sem í notkun eru og tilheyra tengi- eða stofnvegum á Íslandi.
[1] Reglugerð nr. 250/2024 um umferðarmerki og notkun þeirra, 3 gr. Viðauka I
Afgreiðsla
Vegagerðin hefur lokið yfirferð merkinga við einbreiðar brýr á vegakerfinu.
Niðurstöður gefa til kynna að á milli 50 og 60 einbreiðar brýr á stofn - og
tengivegum séu ómerktar og einnig þarf að lagfæra merkingar á fleiri stöðum.
Árið 2026 verður sett í forgang að merkja þær einbreiðu brýr á stofn - og
tengivegum sem eru ómerktar eða merkingum á einhvern hátt ábótavant. Alls
er gert ráð fyrir að merkingar verði bættar við 75 einbreiðar brýr. Jafnframt
verður metið hvort merkja þurfi beygjur á vegi í aðdraga nda brúar betur .
Vegagerðin gefur út handbók um umferðarmerki þar sem koma fram
vinnureglur og leiðbeiningar um almennar merkingar á vegakerfinu í samræmi
við reglugerð um umferðarmerki.
Í núgildandi vinnureglum fyrir merkingar einbreiðra brúa er leyfilegur
hámarkshraði við einbreiðar brýr, þar sem ársdagsumferð er meiri en 300 bílar
á sólarhring, 50 km/klst. Fyrir einbreiðar brýr þar sem ársdagsumferð er
minni en 300 bílar á sólarhring er ekki gert ráð fyrir lækkun leyfilegs
hámarkshraða eða leiðbeinandi merkja um hámarkshraða en hins vegar gert
ráð fyrir viðvörunarmerkjum og gátskjöldum.
Vegagerðin mun yfirfara reglur um leyfilegan hámarkshraða og skoða hvort
ástæða þyki til að lækka leyfilegan hámarkshraða eða þá setja upp
leiðbeinandi hraðamerkingar, við einbreiðar brýr á stofn - og tengivegum þar
sem ársdagsumferð er minni en 300 bílar á sólarhring .