Nr. máls: 2024-009U006
03.06.2025
Að öðlast ökuréttindi
Mikilvægt er að árétta að ökumenn þurfa þjálfunar við til að öðlast ökuréttindi. Þjálfun við öflun ökuréttinda snýr að skipulagðri verklegri þjálfun verðandi ökumanna og mikilvægri kennslu í akstursfræðum. Tilskildum fjölda bóklegra og verklegra tíma þarf að skila í samráði við ökukennara og ökuskóla áður en próf eru lögð fyrir nemendur. Slíkt heildrænt kennsluferli er nauðsynlegur undirbúningur fyrir ökumenn til að gera þeim kleift að stjórna ökutækjum sem eru mismunandi að stærð, lögun, þyngd og fjölda hjóla. Hluti ökunámsins er að kynna sér ökutækið og ástand þess áður en lagt er af stað en mikilvægt er að það sé í góðu ástandi, rétt skráð og skoðun í lagi.