2025

Leita að ábendingar

Um hæfi til aksturs

Umferð
Nr. máls: 2025-047U015
02.06.2026

Um hæfi til aksturs

Til að öðlast og viðhalda ökuréttindum þarf ökumaður að uppfylla ákveðin skilyrði sem tryggja að akstur sé öruggur, bæði fyrir ökumanninn sjálfan og aðra vegfarendur. Mikilvægur þáttur í því er aksturshæfni, sem felur í sér að viðkomandi hafi næga líkamlega og andlega getu til að stjórna ökutæki á öruggan hátt.

Ef mat á aksturshæfni leiðir til þess að ökumanni er ráðlagt að hætta akstri, eða hann er sviptur ökuréttindum, er mikilvægt að ökumaður hlíti því og aki ekki áfram.

Markmið slíkra skilyrða er að stuðla að ábyrgum akstri og draga úr hættu á slysum, þannig að umferðin verði öruggari fyrir alla.

Tengill á skýrslu

Of hraður akstur

Umferð
Nr. máls: 2025-047U015
02.06.2026

Of hraður akstur

Rannsóknarnefnd samgönguslysa hefur áður fjallað um hraðakstur og afleiðingar hans í skýrslum sínum. Of hraður akstur hefur verið ein algengasta orsök banaslysa í umferðinni. Nefndin ítrekar því mikilvægi þess að ökumenn aki ekki hraðar en hámarkshraði, aðstæður og aðrir þættir leyfa hverju sinni.

Tengill á skýrslu

Umferðarljós við gönguleiðir fyrir gangandi vegfarendur

Umferð
Nr. máls: 2025-063U025
05.05.2026

Umferðarljós við gönguleiðir

Umferðarljós við gönguleiðir eru til að stjórna umferð, stuðla að öryggi og vernda vegfarendur. Ef umferð á akbraut er stýrt með umferðarljósum skal samkvæmt umferðarreglum skilyrðislaust stöðva bifreið ef rautt ljós er fyrir umferð um veginn. Þetta er til að auka umferðaröryggi gangandi vegfarenda og koma í veg fyrir árekstra og slys. Það er því mikilvægt að virða ávallt umferðarreglur og ferðir gangandi vegfarenda við gönguleiðir.

Tengill á skýrslu

Hreinsun hjólbarða á vetrartíma.

Umferð
Nr. máls: 2025-008U003
26.03.2026

Hreinsun hjólbarða á vetrartíma.

Mikilvægt er að vetrarhjólbarðar séu hreinir en þeir safna tjöru og öðrum óhreinindum við akstur á hálkuvörðum vegum. Við það verða hjólbarðarnir hálli og veggrip minnkar. Þegar ekið er um vegblæðingasvæði þarf að huga sérstaklega að hreinsun hjólbarða. RNSA beinir því til allra ökumanna að þvo hjólbarða reglulega með dekkjahreinsi.

Tengill á skýrslu

Hættur í umhverfi vega.

Umferð
Nr. máls: 2025-008U003
26.03.2026

Hættur í umhverfi vega.

Þar sem slysið varð var hús innan marka öryggissvæðis vegarins, eða  í um átta metra fjarlægð frá vegbrún. Einnig var trjálundur við veginn og voru þéttir trjárunnar við ytri mörk öryggissvæðisins sem skertu útsýn við gatnamótin. Bendir nefndin á, að mikilvægt sé að huga að þeim stöðum þar sem trjágróður er farinn að vaxa nálægt vegum og grípa inn í áður en hann skapar hættu. Bendir nefndin jafnframt á mikilvægi þess að trjágróður, sjálfsprottinn eða gróðursettur, sé ekki of nærri þjóðvegum þar sem ökuhraði er mikill.

Tengill á skýrslu

Leiðbeiningar framleiðanda.

Umferð
Nr. máls: 2025-030U011
27.02.2026

Leiðbeiningar framleiðanda.

RNSA telur mikilvægt fyrir eigendur bifhjóla að fylgja leiðbeiningum framleiðanda um öryggisatriði sem snúa að ökutækjum þeirra.  Í þessu tilviki var ekki farið eftir leiðbeiningum framleiðanda um smurningu og útskipti á slitinni drifkeðju.

Tengill á skýrslu

Loftpúðar fyrir farþega í framsæti.

Umferð
Nr. máls: 2025-010U005
24.02.2026

Loftpúðar fyrir farþega í framsæti.

Af öryggisástæðum hvetur RNSA innflutningsaðila ökutækja að flytja ekki inn bifreiðar án loftpúða fyrir farþega í framsæti.

Tengill á skýrslu

Akstur í hálku og glerhálku (1)

Umferð
Nr. máls: 2025-006U001
24.10.2025

Hálka og glerhálka

Ísing myndast oft á blautum vegum þegar smám saman kólnar. Ísing sem þessi getur líkst blautum vegi, en myndar spegilslétta og nær ósýnilega þekju á yfirborðinu og því getur verið erfitt fyrir ökumenn að átta sig á aðstæðum. Slíkur ís á vegum er oft kallaður glerhálka eða glæra.

Rannsóknarnefnd samgönguslysa hvetur ökumenn til þess að vera vakandi fyrir hálku og við hvaða aðstæður hún myndast helst. Ökumenn ættu að vera sérstaklega á varðbergi þegar lofthiti er undir 4°C og vegur virðist blautur. Hægt er að finna fræðslu um færð og veður, veðurviðvaranir og fleiri upplýsingar þess efnis[1], horfa á myndband um ísingu og hálku[2] sem og hvernig bera má kennsl á hálku[3] á heimasíðu Samgöngustofu.

Frekari upplýsingar um vetrarakstur er að finna á síðu Félags íslenskra bifreiðaeigenda[4].

 

[1] https://vedur.is/ og  https://island.is/s/samgongustofa

[2] Ísing og hálka

[3] Að bera kennsl á hálku

[4] Vetrarakstur

Tengill á skýrslu

Notkun öryggisbelta

Umferð
Nr. máls: 2025-006U001
24.10.2025

Notkun öryggisbelta

Rannsóknarnefnd samgönguslysa telur mikilvægt að brýna fyrir ökumönnum og farþegum að nota ávallt öryggisbelti, hvort sem verið er að fara styttri eða lengri vegalengdir. Ein helsta orsök banaslysa í umferðinni er að öryggisbelti eru ekki notuð.

Tengill á skýrslu

Notkun öryggisbelta (1)

Umferð
Nr. máls: 2025-009U004
21.10.2025

Notkun öryggisbelta

RNSA telur mikilvægt að brýna fyrir ökumönnum og farþegum að nota ávallt öryggisbelti, hvort sem verið er að fara styttri eða lengri leiðir. Vanhöld á notkun öryggisbelta er ein af helstu orsökum alvarlegra áverka og banaslysa í umferðinni. Athygli er vakin á þeirri hættu sem skapast getur af loftpúðum, springi þeir út þegar ökumaður/farþegar eru ekki spennti í öryggisbelti.

Tengill á skýrslu