Heydalsvegur Haffjarðardalsgil 4.10.2020

Umferð
Nr. máls: 2020-102-U013
11.10.2021

Akstur undir áhrifum áfengis

Undanfarin ár hefur akstur undir áhrifum áfengis verið algeng orsök banaslysa í umferðinni. Eins og alþekkt er hafa vímuefni áhrif á dómgreind ökumanna og skynjun á umhverfið. Áfengismagn í blóði þarf ekki að vera mikið til að áhrifin skerði einbeitingu hins ölvaða, sjónsvið minnkar og fjarlægðarskyn versnar. Eftir því sem ölvun er meiri, lengist viðbragðstími og hreyfistjórnun og rökvísi skerðast.

Rannsóknarnefnd samgönguslysa ítrekar fyrri ábendingar um akstur undir áhrifum áfengis. Að mati nefndarinnar er nauðsynlegt að koma þeim skilaboðum áfram á framfæri við ökumenn að þeir aki ekki bifreið undir neinum kringumstæðum eftir að hafa neytt áfengis.

Tengill á skýrslu