Fíkniefni og lyf

Umferð
Nr. máls: 2020-071U008
20.09.2021

Fíkniefni og lyf

Í þessu slysi var ökumaður VW bifreiðarinnar undir áhrifum sljóvgandi lyfja og ólöglegra fíkniefna. Akstur undir áhrifum áfengis, vímuefna og lyfja er verulegt vandamál. Af sjö banaslysum sem urðu á Íslandi árið 2020 voru ökumenn í þremur slysum undir slíkum áhrifum. Eins og alþekkt er hafa vímuefni áhrif á dómgreind ökumanna og skynjun þeirra á umhverfið. Þættir eins og viðbragð, hreyfistjórnun og rökvísi skerðast og líkur á slysi aukast.

Rannsóknarnefnd samgönguslysa ítrekar fyrri ábendingar um að akstur undir áhrifum fíkniefna og sljóvgandi lyfja. Nauðsynlegt er að koma þeim skilaboðum á framfæri við ökumenn að þeir aki ekki undir neinum kringumstæðum eftir neyslu slíkra efna.

Tengill á skýrslu