35. gr. lagaum RNSA - Rannsóknarnefnd skal gera tillögur um úrbætur í öryggismálum eftir því sem rannsókn slyss gefur tilefni til og beina tilmælum til viðeigandi aðila, innlendra sem erlendra, eftir því sem við á. Tillögurnar skal birta opinberlega. Þeir sem tilmælum er beint til skulu taka tilhlýðilegt tillit til þeirra og hrinda í framkvæmd ef við á. Skulu þeir án tafar og eigi síðar en innan þriggja mánaða frá því að tilmælin bárust gera nefndinni grein fyrir því hvernig brugðist hafi verið
Leita
025-008U003T1. Hálkuvörn við gatnamót.
Tillaga í öryggisátt
Rannsóknarnefnd samgönguslysa beinir þeirri tillögu til Vegagerðarinnar að yfirfara þjónustuferla/kröfur vegna hálkuvarna við gatnamót Hringvegar og Vestfjarðavegar.
Þrátt fyrir að hálkuvarnartæki hafi farið um gatnamót Hringvegar og Vestfjarðavegar skömmu fyrir slysið, varð umrætt banaslys þegar bifreið af Vestfjarðavegi rann í hálku við gatnamótin í veg fyrir hópbifreið á leið um Hringveg.
Afgreiðsla
2025-008U003T2. Öryggisúttekt á gatnamótum.
Tillaga í öryggisátt
Rannsóknarnefnd samgönguslysa beinir þeirri tillögu til Vegagerðarinnar að gera öryggisúttekt á gatnamótum Hringvegar og Vestfjarðavegar til að meta öryggi þeirra sem T-gatnamóta tveggja háhraða vega, meta útsýn við gatnamótin og öryggi vegumhverfis og í framhaldinu grípa til viðeigandi ráðstafana til að bæta öryggi gatnamótanna.
Við slysstað var trjágróðursbelti norðaustan gatnamótanna. Bendir nefndin á mikilvægi þess að útsýn vegfarenda sé góð á gatnamótum. Þá var steinhús innan öryggissvæðis í nálægð við gatnamótin og árekstur bifreiðar við húsið.
Afgreiðsla
2025-008U003T3. Endurskoðun lágmarks öryggiskrafa barnabílstóla.
Tillaga í öryggisátt
Rannsóknarnefnd samgönguslysa beinir þeirri tillögu til evrópsku efnahagsnefndarinnar hjá Sameinuðu þjóðunum UNECE (United Nations Economic Commission for Europe) að endurskoða lágmarks öryggiskröfur til barnabílstóla samkvæmt reglugerð R129.
Í reglugerð R129 kemur fram að barnabílstólar eigi að þola framanákeyrslu upp að 50 km/klst (21-28 G), aftanákeyrslu upp að 30 km/klst (14-21 G) og hliðarákeyrslu upp að 24 km/klst (13-15 G) þar sem opnanleg hurð er til staðar[1]. Fjölbreytt og flókin hönnun barnabílstóla, og lágar kröfur reglugerðar R129 að því er árekstrarprófanir varðar, bjóða heim óviðunandi óvissu um öryggi barna í bílstólum við eðlileg og fyrirsjáanleg notkunarskilyrði. Barnabílstólar eru búnaður sem á að tryggja öryggi barna í bifreiðum við raunverulegar aðstæður í umferðinni og notendur verða að geta treyst á öryggi þeirra við rétta notkun sbr. 2. tl. 3. gr. reglugerðar (EU) 2023/988[2]. Þar kemur fram að „hvers konar vara sem, við eðlileg eða fyrirsjáanleg notkunarskilyrði, þ.m.t. raunverulegan notkunartíma, felur ekki í sér áhættu eða aðeins lágmarksáhættu sem er samrýmanleg notkun vörunnar, telst viðunandi og samrýmist öflugri vernd að því er varðar heilbrigði og öryggi neytenda“. Rannsóknarnefnd samgönguslysa telur að núverandi öryggiskröfur barnabílstóla séu ekki fullnægjandi og því brýnt að huga að heildstæðri endurskoðun á þeim.
[1]Agreement Concerning the Adoption of Uniform Technical Prescriptions for Wheeled Vehicles, Equipment and Parts which can be Fitted and/or be Used on Wheeled Vehicles and the Conditions for Reciprocal Recognition of Approvals Granted on the Basis of these Prescriptions.
[2] Regulation (EU) 2023/988 of the European Parliament and of the Council of 10 May 2023 on general product safety,
Afgreiðsla
Kársnesbraut Urðarbraut 8.12.2014 (2)
Tillaga í öryggisátt
Skólaakstur – ökumenn sjái um að skólabörn noti öryggisbelti.
Samkvæmt 71. gr. umferðarlaga skal hver sá sem situr í sæti bifreiðar sem búið er öryggisbelti nota beltið þegar bifreiðin er á ferð. Skal ökumaður sjá um að farþegi yngri en 15 ára noti öryggis- og verndarbúnað bifreiðar. Brýnt er að þessum reglum sé fylgt í öllum tilvikum. Öryggisbelti í bifreiðinni sem hér er fjallað um þarf að stilla sérstaklega fyrir hvern farþega. Ef vel á að vera þyrfti að ganga á hvert barn og athuga hvort beltið er spennt og hvort það er rétt stillt. Um skólaakstur er í gildi reglugerð um merki á skólabifreiðum nr. 279/1998 með áorðnum breytingum og reglur um skólaakstur í grunnskóla nr. 656/2009. Ekki er gerð krafa um fylgdarmann með ungum börnum í þessum reglum. Í 3. gr. fyrrnefndrar reglu er sveitastjórnum gert að setja sér reglur um fyrirkomulag skólaaksturs. Kópvogsbær upplýsti Rannsóknarnefnd samgönguslysa þann 17. mars s.l. um að reglur hefðu ekki verið settar í bænum um skólaakstur, en unnið sé að úrbótum þar á. Leggur nefndin til við Innanríkisráðuneytið og Menntamálaráðuneytið að reglur um skólaakstur verði teknar til endurskoðunar.
Afgreiðsla
Í bréfi frá Mennta- og menningarmálaráðuneytinu dagsett 9. nóvember 2015 kemur fram að í samráði við Innanríkisráðuneytið hefur verið boðað til endurskoðunar á reglum um skólaakstur. Að lokinni þeirri vinnu verði RNSA upplýst um viðbrögð vegna málsins.
Hellisheiði 29.12.2014
Tillaga í öryggisátt
Nálægðarakstur Samkvæmt gögnum umferðargreinisins sem staðsettur er rétt við slysstað, óku 2130 ökutæki yfir heiðina þennan dag milli klukkan 10 og 19. Voru 104 ökutæki innan við sekúndu frá næstu bifreið fyrir framan, eða um 5 % ökutækja. Þegar öll ökutæki voru talin þar sem bil á milli bifreiðavar minna en 3 sekúndur reyndist það eiga við um þriðjung allra ökutækja. Gott er að hafa í huga að viðbragðstími ökumanns í þjóðvegarakstri, þ.e. sá tími sem liður frá því að hætta skapast þar til ökumaður hemlar og/eða beygir frá, er 1 til 2,5 sekúndur. Ökutæki á hraðanum 90 km/klst. fer 25 metra á sekúndu þannig að ökutæki á þeim hraða ekur 25 til 63 metra frá því hætta skapast þar til ökumaður byrjar að bregðast við. Af þessum sökum er mikilvægt að viðhalda góðu bili á milli ökutækja svo hægt sé að bregðast af öryggi við óvæntum hættum. Í ökukennslu er svokölluð þriggja sekúndna regla kennd, þar sem bent er á að hafa a.m.k. þriggja sekúndna bil á milli bíla og lengra ef færð er ekki góð. Rannsóknarnefnd samgönguslysa beinir því til Samgöngustofu að koma þessum skilaboðum á framfæri til ökumanna.
Afgreiðsla
Hellisheiði 29.12.2014 (1)
Tillaga í öryggisátt
Aðgreining akstusátta. Suðurlandsvegur milli Reykjavíkur og Selfoss er með umferðarmestu þjóðvegum utan þéttbýlis á Íslandi. Undanfarin ár hafa orðið þarna mörg alvarleg umferðarslys. Veghaldari hefur á síðast liðnum árum unnið að bættu umferðaröryggi á veginum sem hefur skilað sér í fækkun alvarlegra slysa. Að mati Rannsóknarnefndar samgönguslysa er mikilvægt að halda áfram á þeirri braut að aðgreina akstursáttir á Suðurlandsvegi til að forða því að ökutæki lendi í hörðum framanákeyrslum eins og í því slysi sem hér er fjallað um. Beinir nefndin því til veghaldara að mikilvægt er að ljúka endurbótum á veginum sem allra fyrst.
Afgreiðsla
Í svarbréfi veghaldara kemur fram að unnið sé að aðgreiningu akstursátta á Suðurlandsvegi milli Reykjavíkur og Selfossar og samkvæmt fyrirlyggjandi áætlun er gert rað fyrir að ljúka aðgerðum á vegkaflanum á næstu fjórum árum.
Hellisheiði 29.12.2014 (2)
Tillaga í öryggisátt
Yfirborðsmerkingar og viðhald þeirra. Rannsókn slyssins leiddi í ljós að ökumenn sem þarna voru á ferð áttu í erfiðleikum með að átta sig á miðlínu vegarins. Bæði var skafrenningur og snjór á veginum ásamt því að málningin á miðlínu vegarins var orðin máð. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni, var miðlínan síðast máluð fyrir slysið í júní 2013, eða um ½ ári áður. Rannsóknarnefnd samgönguslysa leggur til við veghaldara að skoða með hvaða hætti hægt sé að minnka líkur á að ökumenn lendi í þeim aðstæðum að eiga í erfiðleikum með að greina miðlínu vegar.
Afgreiðsla
Í svari veghaldara kemur fram að á umræddum stað séu yfirborðsmerkingar endurnýjaðar á hverju ári. Þær verði fyrir mikilli áraun vegna m.a. umferðar og snjómoksturs en miðað við nútímatækni sé ekki mögulegt að endurnýja þær að vetrarlagi. Veghaldari hafi á undanförnum árum látið fræsa rifflur milli akstursátta á allmörgum stöðum og stefnt sé að slíkri útfærslu á fleiri stöðum eftir því sem aðstæður leyfa.
Vesturlandsvegur sunnan Bifrastar 23.8.2013
Tillaga í öryggisátt
Breytingar á bifreiðum fyrir hreyfihamlaða. Heimilt er að aðlaga bifreiðar að þörfum hreyfihamlaða. Þegar bifreið hefur verið breytt er skylt að fara með hana í breytingarskoðun hjá faggildri skoðunarstofu þar sem breytingin er yfirfarin og tilkynnt til Samgöngustofu. Ekki er gerð krafa um að notendur fari í þjálfun í notkun á búnaðinum. Ökumaðurinn sem lést í þessu slysi notaði ekki öryggisbelti sökum þess að hefðbundin búnaður í bifreiðinni passaði ekki fyrir hann. Í reglugerð um notkun öryggis- og verndarbúnað í ökutækjum nr. 348/2007 með áorðnum breytingum eru tilgreindar nokkrar undanþágur frá þeirri reglu að öllum sé skylt að spenna öryggisbelti í bifreiðum sé það til staðar. Heilsufars- eða læknisfræðilegar ástæður geta verið þess valdandi að einstaklingur getur illa nýtt þennan mikilvæga öryggisbúnað og þarf þá læknisvottorð því til staðfestingar. Rannsóknarnefnd samgönguslysa bendir á, að í sumum þessara tilfella, er hægt að aðlaga búnaðinn að þörfum einstaklingsins. Það er mikilvægt að áður en ákvörðun er tekin um að sleppa því að spenna beltið sé þessi möguleiki skoðaður. Rannsóknarnefnd samgönguslysa beinir því til Samgöngustofu og Landlæknis að yfirfara þær reglur sem í gildi eru bæði um undanþágu um notkun öryggisbelta sem og reglur um breytingar á bifreiðum fyrir hreyfihamlaða.
Afgreiðsla
Í svarbréfi Landlæknis kemur fram að embættið telji ekki ástæðu til að gera breytingar á reglugerð um notkun öryggis- og verndarbúnað í ökutækjum nr. 348/2007.
Vesturlandsvegur sunnan Bifrastar 23.8.2013 (1)
Tillaga í öryggisátt
Merking ferðamannastaða Í rannsókn sem Rannsóknarnefnd umferðarslysa framkvæmdi á umferðarslysum erlendra ferðamanna á árunum 2006 til 2010 kom í ljós, að önnur algengasta orsök alvarlegra umferðarslysa þessa hóps var að athygli ökumanns var ekki við aksturinn á eftir of hröðum akstri miðað við aðstæður. Við rannsókn þessa slyss kom í ljós að erlendi ferðamaðurinn var að skoða vegakort undir stýri til að átta sig á hvar afleggjarinn að fossinum Glanna væri. Lítið skilti er við afleggjarann að fossinum. Rannsóknarnefnd samgönguslysa bendir á mikilvægi þess að ferðamannastaðir séu vel merktir. Beinir nefndin því til Ferðamálastofu og Vegagerðarinnar að taka staði sem sérstaklega eru auglýstir fyrir erlenda ferðamenn til skoðunar hvað þetta atriðið varðar.
Afgreiðsla
Í svari sem barst frá Vegagerðinni kemur fram að merkingar á umræddum stað hafi verið skoðaðar sérstaklega og verið sé að huga að breytingum á þeim. Einnig mun Vegagerðin, í samráði við ferðamálastjóra, taka til athugunar hvort ástæða sé til að skoða merkingar ferðamannastaða sérstaklega.
Nauthólsvegur við Hringbraut 15.febrúar 2015
Tillaga í öryggisátt
Rannsóknarnefnd samgönguslysa gerir þá tillögu í öryggisátt að heilbrigðisráðherra skipi vinnuhóp sem fjalli um ökuleyfi og veikindi. Yrði horft til skipulags í öðrum löndum og t.d. rannsakað hvort taka eigi upp sambærilegt kerfi og tíðkast í Bandaríkjunum.
Afgreiðsla
Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að bregðast við tillögu nefndarinnar. Verður Landlækni falið að skipa vinnuhóp og skal hann skila tillögum hópsins til heilbrigðisráðherra fyrir 1.júní 2016.