35. gr. lagaum RNSA - Rannsóknarnefnd skal gera tillögur um úrbætur í öryggismálum eftir því sem rannsókn slyss gefur tilefni til og beina tilmælum til viðeigandi aðila, innlendra sem erlendra, eftir því sem við á. Tillögurnar skal birta opinberlega. Þeir sem tilmælum er beint til skulu taka tilhlýðilegt tillit til þeirra og hrinda í framkvæmd ef við á. Skulu þeir án tafar og eigi síðar en innan þriggja mánaða frá því að tilmælin bárust gera nefndinni grein fyrir því hvernig brugðist hafi verið
Leita
24-047U016T02. Úttekt á öryggiskröfum brúarhandriða
Tillaga í öryggisátt
Rannsóknarnefnd samgönguslysa beinir þeirri tillögu til Vegagerðarinnar að vinna úttekt á því hvort öryggiskröfur brúarhandriða brúa, sem tilheyra stofn- eða tengivegum, séu fullnægjandi.
Í þessu tilfelli var einbreiða brúin var 3,5 metrar á breidd og 14 metrar að lengd. Þá var brúarrið ekki nægjanlega hátt sem og lengd þess út fyrir enda brúarinnar ekki í samræmi við núgildandi staðla.
Afgreiðsla
Vegagerðin hefur unnið að endurbótum vegriða á brúm á undanförnum árum. Í kjölfar úttektar árið 2019 hefur verið varið árlega um 100-200 milljónum kr. sérstaklega til endurnýjunar vegriða á brúm brýr á umferðarmeiri vegum þar sem styrk er ábótavant og/eða afleiðingar ákeyrslu yrðu miklar. Alls hefur verið ráðstafað rúmlega 1.000 m.kr til þessara verkefna frá árinu 2019.
Þá er unnið eftir sérstakri áætlun um endurbætur vegriða á brúm, þ.m.t. frágangi vegriða fyrir utan brýr. Eru þær endurbætur gjarnan unnar samhliða öðrum viðhaldsaðgerðum við brýr og/eða öðrum umferðaröryggisaðgerðum.
Kröfur til brúarvegriða í dag taka mið af veghönnunarreglum, reglum um hönnun brúa svo og íslenskum/evrópskum hönnunar- og framleiðslustöðlum.
í veghönnunarreglum eru skilgreindar kröfur varðandi styrk og virkniflokk vegriða sem miða skuli við. Fyrir brýr og stoðveggi þar sem hæð er yfir 4 m og lengd yfir 10 m er gerð krafa um vegrið með styrkleikaflokk H2, það jafngildir því að vegriðið þoli ákeyrslu 13 t ökutækis á 70 km/klst. hraða.
Kröfur og útfærslur vegriða hafa breyst á síðustu áratugum og almennt eru brýr sem byggðar eru eftir árið 2008 með vottuðum vegriðum sem framleidd eru samkvæmt framleiðslustöðlum. Brýr sem byggðar eru fyrir þann tíma hafa styrk sem er lægri en H2.
Ljóst er að ekki er mögulegt að gera úrbætur á öllum brúarvegriðum á stofn- og tengivegum þannig að þau uppfylli núgildandi kröfur um vottaðan vegbúnað og þær kröfur sem gerðar eru um styrk vegriða fyrir nýjar brýr. Þá er í sumum tilfellum ekki mögulegt að skipta út eldri vegriðum fyrir sterkari vegrið án styrkingar á burðarvirki brúarinnar.
25-006U001T01. Mat á hálkuvörnum á Þingvallavegi við Álftavatn
Tillaga í öryggisátt
Rannsóknarnefnd samgönguslysa beinir þeirri tillögu til Vegagerðarinnar að endurskoða hálkuvarnir á Þingvallavegi með tilliti til vegarkaflans við Álftavatn.
Á Þingvallavegi á milli Biskupstungnabrautar og vegamóta við Lyngdalsheiðarveg eru nokkrir vegarkaflar hálkuvarðir í hálku og eða flughálku en vegir í þjónustu Vegagerðarinnar eru hálkuvarðir á varasömum stöðum eða við varasamar veðuraðstæður. Slíkir staðir eru á vegarkafla um Írafoss og Ljósafoss, í brekku ofan Kaldárhöfða, á Þingvallavegi við vegamót við Biskupstungnabraut og við vegamót við Lyngdalsheiðarveg.
Á vegarkaflanum um Álftavatn eru aðstæður í landslagi sem auka hættu á glerhálku í vetrarstillum en sá vegarkafli er ekki innan hálkuvarnarþjónustu Vegagerðarinnar. Vegurinn lækkar að vatnsyfirborði Álftavatns þar sem hann liggur næst vatninu. Aukinn raki og lækkun lofthita í stillum tengjast slíkum aðstæðum í landslagi. Því beinir nefndin þeirri tillögu til Vegagerðarinnar að meta hvort sá vegarkafli ætti að tilheyra varasömum stöðum sem falla undir hálkuvarnir.
Afgreiðsla
Hálkuvarnir á vegarkafla á Þingvallavegi við Álftavatn hafa verið endurskoðaðar. Vegarkaflinn er nú skilgreindur sem varasamur staður sem skuli hálkuvarinn við hálku og flughálku.
Þá vinnur Vegagerðin að því að kortleggja þá staði þar sem aðstæður hafa breyst þannig að kuldapollar geta myndast en þar eru auknar líkur á launhálku þótt aðrir hlutar vegarins séu hálkulausir. Ástæður geta verið margvíslegar , þ.m.t. vatn í nálægð við veg, trjágróður við veg, vegur í skeringu og háhýsi í grennd við veg. Að lokinni þessari kortlagningu verður metið hvort niðurstöðurnar gefi tilefni til að endurskoða vinnureglur og framkvæmd vetrarþjónustu. Á fjölmörgum stöðum á vegakerfinu eru óskir um auknar hálkuvarnir , ljóst er að auknar hálkuvarnir kalla á aukið fjármagn til vetrarþjónustu.
25-006U001T02. Öryggisúttekt á undirbyggingu vegar
Tillaga í öryggisátt
Rannsóknarnefnd samgönguslysa beinir þeirri tillögu til Vegagerðarinnar að gera öryggisúttekt á undirbyggingu Þingvallavegs við Álftavatn.
Ökumaður vörubifreiðarinnar missti stjórn á henni á tiltölulega beinum um 130 metra löngum kafla þar sem undirbygging vegarins virðist hafa gefið sig en langsum hæðarmismunur innan hægri akreinar í norðurátt var mestur 16 cm og halli mestur um 12 gráður. Slík brot í vegi geta skapað hættuástand þegar glerhálka myndast.
Afgreiðsla
Eins og kom fram í skýrslu rannsóknanefndarinnar var Þingvallavegur á slysstað mjög illa farinn. Fjárveitingar til viðhalds þjóðvega hafa verið í lágmarki og langt innan við þörf miðað við ástand vegakerfisins. Í fjáraukalögum frá Alþingi í júní 2025 voru samþykktar viðbótarfjárveitingar til viðhalds á vegakerfinu um allt land. Þingvallavegur við Álftavatn var einn af þeim vegköflum sem voru endurbættir sumarið 2025 og er hann nú í góðu ástandi.
25-015U006T01 Úrbætur vegna grjóthruns
Tillaga í öryggisátt
Rannsóknarnefnd samgönguslysa beinir þeirri tillögu til Vegagerðarinnar að vinna þegar að úrbótum á Hringvegi við Steinafjall vegna hættu á grjóthruni á veginn.
Gera þarf viðeigandi úrbætur til að bæta umferðaröryggi þar sem umferð um vegarkaflann hefur aukist mikið undanfarin ár og búast má við vaxandi umferð. Vegarkaflinn við Steinafjall er þekktur grjóthrunsstaður og að sögn kunnugra er grjóthrun úr fjallinu algengast á haustin og vorin. Að þeirra sögn er slíkt grjóthrun mun algengara en skráðar heimildir segja til um. Grjót- og grjóthrunsmerki eru við Hringveg á móts við Steinafjall.
Afgreiðsla
Vegagerðin bauð út framkvæmdir við gerð hrunvarnar meðfram Hringvegi við Holtsnúp undir Eyjafjöllum í mars 2026 og hófust framkvæmdir í júní 2026. Hrunvarnirnar eru reistar á um 300 m löngum kafla. Um er að ræða tveggja metra háan grjótvegg sem staðsettur er á milli fjallshlíðarinnar og vegarins og hefur það að markmiði að auka öryggi vegfarenda og minnka líkur á að grjót nái að vegi. Gert er ráð fyrir að framkvæmdum verði lokið í ágúst 2026.
2025-063U025T1. Viðhald lampa og birta þeirra við gönguleiðir
Tillaga í öryggisátt
Rannsóknarnefnd samgönguslysa beinir þeirri tillögu til veghaldara að yfirfara þjónustuferla/viðmið vegna viðhalds og birtu lampa við gönguleiðalýsingar á höfuðborgarsvæðinu.
Niðurstaða úr lýsingarútreikningi, við gönguleiðina þvert yfir Suðurlandsbraut við slysstað, var sú að birtan var undir viðmiðum Reykjavíkurborgar en sá útreikningur miðaðist við að báðir lampar á ljósastaurnum við gönguleiðina væru í lagi.
Bilaður lampi var í lýsingu við gönguleiðina þegar umrætt banaslys varð þann 8. desember 2025. Þegar ljósmæling var unnin 16. mars 2026 var ekki búið að lagfæra lýsinguna á gönguleiðinni á slysstað, sem var um fjórðungur miðað við viðmið og lýsingarreglur veghaldara á umferðarljósastýrðum gönguleiðum. Þannig voru liðnir að minnsta kosti rúmir þrír mánuðir án viðhalds.
Á gönguleiðinni þar sem slysið varð má búast við talsverðri umferð gangandi vegfarenda en sunnan við gönguleiðina er m.a. eitt af stærstu hótelum á höfuðborgarsvæðinu. Norðan við gönguleiðina er Laugardalur sem er vinsæll útivistarstaður. Þá liggur göngu- og hjólaleið einnig meðfram Suðurlandsbraut að norðanverðu. Meðaltalsumferð ökutækja á sólarhring (ÁDU) við slysstað var 17.950 ökutæki samkvæmt talningu í september 2025.
Afgreiðsla
Í svari frá Reykjavíkurborg frá 20. júlí 2026 kemur fram að í nýju verklagi, í viðhaldskerfi Tækniþjónustunnar sem m.a. heldur utan um alla ljósastaura innan borgarlandsins, hafa verið skilgreind viðkvæm svæði sem til að mynda umferðarþungar gangbrautir falla undir. Við reglulegt eftirlit starfsmanna Tækniþjónustunnar eru skráðir allir ljóslausir staurar. Ábendingar frá íbúum eru jafnframt skráðar í grunn kortasjár. Verkefnastjóri gatnalýsingar yfirfer skráningar í kortasjá daglega og sér ef skráður ljóslaus staur er á skilgreindu viðkvæmu svæði og er þá brugðist við fyrr en ella. Gert er ráð fyrir að þetta verklag verður þróað áfram m.a. í átt að aukinni sjálfvirkni tilkynninga á bilunum/ljósleysi. Með þessu móti hefur er yfirsýn verið bætt og viðbragðstími styttur verulega frá fyrra verklagi.
Fyrra verkferli var þannig að þegar fjöldi ljóslausra staura í einu hverfi náði fjöldanum 10 til 15 eða fleiri, þá
var farið og skipt um peru í viðkomandi hverfi/svæði þar sem var ljóslaust.