Suðurlandsvegur við Skaftafell
Dacia fólksbifreið ekið norðaustur Suðurlandsveg við Skaftafell. Á sama tíma var Audi fólksbifreið ekið úr gagnstæðri átt suðvestur Suðurlandsveg. Um 180 metrum suðvestan við gatnamótin að Skaftafellsvegi fór Audi bifreiðin yfir á rangan vegarhelming og framan á Dacia bifreiðina í hörðum árekstri. Tveir farþegar í Dacia bifreiðinni létust í slysinu.
SkýrslaTillaga í öryggisátt:
24-002U002T01. Þéttari staðsetningar fyrstu viðbragðsaðila á Suðausturlandi
Tilmæli/Ábendingar:
Akstur í hálku og glerhálku 12.01.2024