Rannsóknarnefnd samgönguslysa hefur gefið út skýrslu um banaslys sem varð á Vesturlandsvegi á brú yfir Norðurá við Fornahvamm þann 12. janúar 2014. Í slysinu lést ökumaður og farþegi í framsæti þegar ökumaður missti stjórn á bifreið sinni og rann á hlið framan á vöruflutningabifreið. Snjór og hálka var á veginum. Nánar um slysið má lesa í skýrslu nefndarinnar: Vesturlandsvegur við Fornahvamm