2024

Leita að ábendingar

Akstur á malarvegum.

Umferð
Nr. máls: 2024-047U016
29.09.2025

Akstur á malarvegum.

Almennur leyfður há­marks­hraði á mal­ar­veg­um er 80 km/​klst en þó skal ávallt miða hraða við aðstæður og reynslu af akstri á mal­ar­vegi. Mik­il­vægt er að draga ávallt úr hraða þegar farið er af bundnu slitlagi yfir á mal­ar­veg. Viðnám malarvega er minna en á vegum með bundnu slitlagi og hætta er á að missa stjórn á bifreið ef athygli er ekki á veginum og ekið er úr hjólförum í lausamöl nærri vegöxl.

Tengill á skýrslu

Öryggi ferðamanna í umferðinni

Umferð
Nr. máls: 2024-047U016
29.09.2025

Öryggi ferðamanna í umferðinni

Við markaðssetningu ferðamannaleiða þarf að huga að innviðum, eins og ástandi vega, að þeim stöðum sem markaðssetningin beinist að. Koma þarf upplýsingum til þeirra sem ferðast á eigin vegum um hættur á leið til áfangastaða, sérstaklega þeirra sem fáfarnir eru og þar sem leiðir  eru erfiðar yfirferðar. Mikilvægt er að með slíkri markaðsvinnu á landsvísu séu unnar öflugar öryggisáætlanir[1], bæði af hendi ferðaskrifstofa og markaðsaðila, sem beinast að umferð ferðamanna, hvort sem þeir eru í skipulögðum ferðum eða á eigin vegum. Haft hefur verið eftir ferðamálastjóra að íslenska vegakerfið sé líklega hættulegasti ferðamannastaður landsins[2]. Því er rík ástæða fyrir íslenska ferðaþjónustu að huga að aðgengi og öryggi þeirra ferðamanna sem slík markaðssetning beinist að. Í ferðamálastefnu og aðgerðaáætlun til 2030[3] er meðal annars lögð áhersla á að fagmennska, gæði og öryggi einkenni íslenska ferðaþjónustu og hefur verið stofnaður starfshópur til þess að greina öryggismál í ferðaþjónustu, vinna að framgangi þeirra og tryggja samtal á milli aðila.

 

[1] https://www.ferdamalastofa.is/is/leyfi/oryggisaaetlanir#vidbragdsaaetlun

[2] https://www.visir.is/g/20242626991d/-islenska-vegakerfid-er-liklega-haettulegasti-ferdamannastadur-landsins-

[3] https://www.ferdamalastofa.is/is/troun/ferdamalastefna-og-adgerdaaetlun

Tengill á skýrslu

Akstur undir áhrifum áfengis, lyfja og vímuefna

Umferð
Nr. máls: 2024-025U011
26.09.2025

Akstur undir áhrifum áfengis, vímuefna og lyfja er alvarlegt vandamál í umferðinni. Af tuttugu og sjö banaslysum í umferðinni árin 2021-2023 voru ökumenn í sjö slysum undir áhrifum ólöglegra fíkniefna, lyfja eða áfengis. Slíkt hefur áhrif á dómgreind ökumanna og skynjun þeirra á umhverfið. Viðbragð, hreyfistjórnun og rökvísi skerðast og líkur á alvarlegu slysi aukast.

Rannsóknarnefnd samgönguslysa ítrekar fyrri ábendingar um akstur undir áhrifum fíkniefna, áfengis og sljóvgandi lyfja. Nauðsynlegt er að koma þeim skilaboðum á framfæri við ökumenn að þeir aki ekki undir neinum kringumstæðum eftir slíka neyslu.

Tengill á skýrslu

Of hraður akstur

Umferð
Nr. máls: 2024-020U008
12.06.2025

Of hraður akstur

Rannsóknarnefnd samgönguslysa hefur áður fjallað um hraðakstur og afleiðingar hans í skýrslum sínum. Of hraður akstur hefur verið ein af algengustu ástæðum banaslysa í umferðinni og ítrekar nefndin mikilvægi þess að ökumenn aki ekki hraðar en hámarkshraði og aðstæður leyfa hverju sinni.

Tengill á skýrslu

Öryggisbúnaður dráttarvéla

Umferð
Nr. máls: 2024-007U004
06.06.2025

Öryggisbúnaður dráttarvéla

Rannsóknarnefnd samgönguslysa beinir þeim tilmælum til eigenda/umráðamanna vinnu- og dráttarvéla að huga ávallt að öryggisbúnaði þeirra. Til þess að auka öryggi er æskilegt að útbúa slíkar vélar með öruggum sætum með háu baki. Öryggisbelti eru að mati nefndarinnar einnig nauðsynleg í hverju því ökutæki sem ekið er um skráða vegi landsins. Ekki er skylda að hafa varúðarljósker á dráttarvélum eða vinnuvélum. Þau eru hins vegar leyfð og mega vera á dráttarvél og vinnuvél sem fylgir ekki umferðarhraða og má hafa þau blikkandi á meðan þær eru í akstri á milli staða. Hafa má eitt eða fleiri varúðarljós á hverri vél og þurfa þau ekki sérstaka viðurkenningu. Glitaugu og útlínuborðar með endurskini eru ódýr og örugg aðferð til að vekja athygli á ökutæki, hvort sem það er kyrrstætt eða á hreyfingu á eða í námunda við veg. Á það sérstaklega við um í myrki. Gæta þarf að því að merkingar séu leyfilegar á ökutækinu og þeim rétt komið fyrir.

Tengill á skýrslu

Akstur og lyfjameðferð – ábending til vegfarenda

Umferð
Nr. máls: 2024-007U004
06.06.2025

Akstur og lyfjameðferð – ábending til vegfarenda

Rannsóknarnefnd samgönguslysa bendir þeim á sem eru í læknismeðferð á slævandi lyfjum að fylgja leiðbeiningum í fylgiseðli þegar þar kemur fram að ekki skuli aka bifreið við notkun lyfsins. Slævandi lyf geta meðal annars valdið tapi á einbeitingu eða stjórnun vöðva, minnisleysi, sundli, svefnhöfga eða aðsvifi.

Tengill á skýrslu

Lyfjaávísun slævandi lyfja – ábending til lækna

Umferð
Nr. máls: 2024-007U004
06.06.2025

Lyfjaávísun slævandi lyfja – ábending til lækna

Rannsóknarnefnd samgönguslysa vill koma á framfæri við lækna sem ávísa slævandi lyfjum til skjólstæðinga sinna að leggja ávallt mat á hvort viðkomandi verði fær um að keyra vélknúið ökutæki á öruggan hátt og þá hvenær slíkt er óhætt eftir töku lyfsins. Huga þarf að leiðbeiningum með lyfjum og skýra vel fyrir skjólstæðingum, hvort akstur sé óráðlegur jafnvel þó akstur kunni að vera heimill á meðan meðferð stendur. Einnig þarf að huga að helmingunartíma lyfja sem ávísað er. Langur helmingunartími lyfja, yfir 10 tíma, fer iðulega ekki saman með akstri ökutækja á meðan lyf með styttri helmingunartíma geta mögulega farið saman með akstri. Vísað er á grein í Læknablaðinu frá 2018 um akstur undir áhrifum slævandi lyfja og upplýsingar sem þar koma fram um reglur í Noregi og Danmörku. https://www.laeknabladid.is/tolublod/2018/09/nr/6827

Tengill á skýrslu

Akstur í hálku og glerhálku

Umferð
Nr. máls: 2024-002U002
03.06.2025

Hálka og glerhálka

Hálka getur myndast á vegi á nokkra mismunandi máta. Daginn sem slysið við Skaftafell varð hafði hitastig verið lækkandi og komið í 3°C um það leyti sem áreksturinn varð. Ísing myndast oft á blautum vegum þegar smám saman frystir. Ísing sem þessi getur líkst blautum vegi, en myndar spegilslétta og nær ósýnilega þekju á yfirborðinu og því getur verið erfitt fyrir ökumenn að átta sig á aðstæðum. Slíkur ís á vegum er oft kallaður glerhálka eða glæra.

Rannsóknarnefnd samgönguslysa hvetur ökumenn til þess að vera vakandi fyrir hálku og við hvaða aðstæður hún myndast helst. Ökumenn ættu að vera sérstaklega á varðbergi þegar lofthiti er undir 4°C og vegur virðist blautur. Hægt er að finna upplýsingar um færð og veður, veðurviðvaranir og fleiri upplýsingar þess efnis[1], horfa á myndband um ísingu og hálku[2] sem og hvernig bera má kennsl á hálku[3] á heimasíðu Samgöngustofu.

Frekari upplýsingar um vetrarakstur er að finna á síðu Félags íslenskra bifreiðaeigenda[4].

 

[1] Ferðast í vondu veðri, miklum vindi eða slæmri færð

[2] Ísing og hálka

[3] Að bera kennsl á hálku

[4] Vetrarakstur

Tengill á skýrslu

Að öðlast ökuréttindi

Umferð
Nr. máls: 2024-009U006
03.06.2025

Að öðlast ökuréttindi

Mikilvægt er að árétta að ökumenn þurfa þjálfunar við til að öðlast ökuréttindi. Þjálfun við öflun ökuréttinda snýr að skipulagðri verklegri þjálfun verðandi ökumanna og mikilvægri kennslu í akstursfræðum. Tilskildum fjölda bóklegra og verklegra tíma þarf að skila í samráði við ökukennara og ökuskóla áður en próf eru lögð fyrir nemendur. Slíkt heildrænt kennsluferli er nauðsynlegur undirbúningur fyrir ökumenn til að gera þeim kleift að stjórna ökutækjum sem eru mismunandi að stærð, lögun, þyngd og fjölda hjóla. Hluti ökunámsins er að kynna sér ökutækið og ástand þess áður en lagt er af stað en mikilvægt er að það sé í góðu ástandi, rétt skráð og skoðun í lagi.

Tengill á skýrslu

Akstur í hálku

Umferð
Nr. máls: 2024-008U005
25.03.2025

Akstur í hálku

Það er krefjandi að aka bifreið á hálum vegi. Sérstaklega þarf að passa upp á hraðann en því meiri hraði í hálku því erfiðara er að stjórna bifreið og hemlunarvegalengd eykst til muna. Snögg hemlun, skyndileg hreyfing í stýri og þungt ástig á inngjöfina geta fljótt valdið stjórnleysi. Fara þarf með gát í beygjur og gæta að því að auka eða minnka hraða varlega. Slíkt getur komið í veg fyrir að bifreið missi rásfestu, skriki til eða renni og dregur þannig um leið úr hættu.

Þegar dregið er úr hraða við akstur í hálku þarf að slaka á inngjöfinni tímanlega og beita hemlum mjúklega. Við nauðhemlun á snævi þöktum eða hálum vegum getur ökutækið hæglega runnið til en nauðsynlegt er að halda hæfilegri fjarlægð frá næsta ökutæki fyrir framan.

Rannsóknarnefnd samgönguslysa hvetur ökumenn til þess að vera vakandi fyrir hálku og við hvaða aðstæður hún myndast helst. Ökumenn ættu að vera sérstaklega á varðbergi þegar lofthiti er undir 4°C og vegur virðist blautur. Hægt er að finna upplýsingar um færð og veður, veðurviðvaranir og fleiri upplýsingar þess efnis, horfa á myndband um ísingu og hálku sem og hvernig bera má kennsl á hálku á heimasíðu Samgöngustofu.

Frekari upplýsingar um vetrarakstur er að finna á síðu Félags íslenskra bifreiðaeigenda.

 

Tengill á skýrslu