Nr. máls: 2021-110U013
16.02.2023
Hvalfjarðarvegur
Þar sem slysið varð var stór steinn rétt við mörk öryggissvæðis vegarins, eða í um sjö metra fjarlægð frá vegbrún. Einnig var trjálundur við veginn og voru tré farin að vaxa innan öryggissvæðisins. Með tíð og tíma munu þessi tré skapa árekstrarhættu við útafakstur og skerða útsýn frá heimreiðinni að félagsheimilinu sem þarna stendur fyrir ofan veginn. Bendir nefndin á, að mikilvægt sé að huga að þeim stöðum þar sem trjágróður er farinn að vaxa nálægt vegum og grípa inn í áður en hann skapar hættu. Bendir nefndin jafnframt á mikilvægi þess að trjágróður sé ekki settur of nærri þjóðvegum þar sem ökuhraði er mikill.