Akstur undir áhrifum ólöglegra fíkniefna

Umferð
Nr. máls: 2021-110U013
16.02.2023

Hvalfjarðarvegur

Akstur undir áhrifum áfengis, vímuefna og lyfja er alvarlegt vandamál í umferðinni.  Í sjö banaslysum í umferðinni árið 2020 voru ökumenn í fjórum slysum undir  áhrifum ólöglegra fíkniefna eða áfengis. Vímuefni hafa áhrif á dómgreind ökumanna og skynjun þeirra á umhverfið. Viðbragð, hreyfistjórnun og rökvísi skerðast og líkur á alvarlegu slysi aukast.

Rannsóknarnefnd samgönguslysa ítrekar fyrri ábendingar um akstur undir áhrifum fíkniefna og sljóvgandi lyfja. Nauðsynlegt er að koma þeim skilaboðum á framfæri við ökumenn að þeir aki ekki undir neinum kringumstæðum eftir neyslu slíkra efna.

Skýrsla