Leita
T123075S034 Huginn VE 55
Tillaga í öryggisátt
RNSA beinir því til útgerðaraðila Hugins að leitast verði við því að bæta samskipti innan áhafnar og milli stjórnenda útgerðarinnar og áhafnar með það að markmiði að koma á góðum vinnubrag.
Afgreiðsla
T223-075-S-034 Huginn VE55
Tillaga í öryggisátt
RNSA beinir því til Innviðaráðuneytisinns að gerð sé úttekt á því hvort lögnum og öðrum mannvirkjum sé komið fyrir í eða nálægt innsiglingum hafna er geti stofnað öryggi skipa í hættu verði vélarbilun eða aðrar ófyrirséðar aðstæður.
Afgreiðsla
Hadda HF 52 og Longdawn
Tillaga í öryggisátt
Rannsóknarnefnd samgönguslysa beinir því til Landhelgisgæslunnar að þegar send eru út MADAY RELAY neyðarboð séu þau tafarlaust send einnig út á ensku.
Afgreiðsla
Skipverji slasast. Sólborg RE 27
Tillaga í öryggisátt
Rannsóknarnefnd samgönguslysa beinir því til Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða að komið sé á verklagi sem tryggir að sjómenn sem þangað þurfa að leita á öllum tímum sólarhrings fái tilskylda umönnun.
Afgreiðsla
T123-056-S-031 Silver Moon
Tillaga í öryggisátt
RNSA beinir því til Faxaflóahafna að setja sér þá verklagsreglu að lendi hafnsögumaður í sjóatviki er gæti virst alvarlegt leiðsegi hann ekki öðru skipi fyrr en atvikið hefur verið yfirfarið.