Mættir nefndarmenn voru Geirþrúður Alfreðsdóttir formaður, Ingi Tryggvason og Hilmar Snorrason.  Pálmi K Jónsson komst ekki vegna ófærðar fyrir flug frá Ísafirði. Einnig voru á fundinum starfsmenn nefndarinnar, Jón A Ingólfsson rannsóknarstjóri og Guðmundur Lárusson fulltrúi.
 
Á dagskrá fundarins voru alls 62 mál til afgreiðslu.  Í töflu I eru þau mál (16) sem voru lokaafgreidd á fundinum.  (Hægt er að nálgast allar lokaskýrslur hér á vefnum).  Tveimur málum var frestað (tafla II) og í töflu III eru mál (10) sem voru afgreidd sem drög og hafa verið send út til aðila þeirra til umsagnar.

Næsti fundur verður 6. október n.k.