2025-028-S-15 Ormurinn langi AK 64
Banaslys þegar bátur sökk
Veður og öldulag þann 30. júní 2025 var með þeim hætti að sjósókn lítilla báta gat verið varhugaverð. Það má telja líklegt að rafgeymar sem ekki gátu fætt lensidælur hafi skert sjóhæfni Ormsins langa, auk þess var bátnum siglt í gegnum Blakksnesröstina, sem getur verið smærri bátum varhugaverð, þó sú sigling til hafnar sé styttri.
Önnur atriði komu fram við rannsóknina, sem ekki er hægt að fullyrða að tengist andláti skipverjans, en sem RNSA telur alvarleg og höfðu áhrif á björgunarbúnað og sjóhæfni bátsins.
SkýrslaTillaga í öryggisátt:
TÖ1-2025028S15 Ormurinn langi TÖ2-2025028S15 Ormurinn langi TÖ3-2025028S15 Ormurinn langi 30.06.2025