Slysa- og atvikaskýrslur

Nýlegar slysa- og atvikaskýrslur:

2025-060-S-022 Viðey RE 50

Öll viðbrögð við slysinu um borð voru til fyrirmyndar.

Skýrsla 30.11.2025
Siglingasvið

2025-46-S-020 Máni

Ástæða þess að Máni missti stjórn á stýri var að lofttappi myndaðist í vökvahluta stýrisbúnaðarins og að olíu vantaði á kerfið.

Eftir atvikið hefur verið ákveðið að sjónglas verði sett á hæðarkerið svo betra verði að fylgjast með olíuhæð á kerfinu.

Skýrsla 09.08.2025
Siglingasvið

2025-028-S-15 Ormurinn langi AK 64

Banaslys þegar bátur sökk

Veður og öldulag þann 30. júní 2025 var með þeim hætti að sjósókn lítilla báta gat verið varhugaverð. Það má telja líklegt að rafgeymar sem ekki gátu fætt lensidælur hafi skert sjóhæfni Ormsins langa, auk þess var bátnum siglt í gegnum Blakksnesröstina, sem getur verið smærri bátum varhugaverð, þó sú sigling til hafnar sé styttri.

Önnur atriði komu fram við rannsóknina, sem ekki er hægt að fullyrða að tengist andláti skipverjans, en sem RNSA telur alvarleg og höfðu áhrif á björgunarbúnað og sjóhæfni bátsins.

Skýrsla
Tillaga í öryggisátt:
TÖ1-2025028S15 Ormurinn langi
TÖ2-2025028S15 Ormurinn langi
TÖ3-2025028S15 Ormurinn langi 30.06.2025
Siglingasvið

2025-23-S-14 Bonný ST 45

Ástæða þess að Bonný ST 45 strandaði má rekja til þess að báturinn beygði eða var beygt í átt að landi.

Skýrsla 21.05.2025
Siglingasvið

2025-021-S012 Svanur HF 20

Svani HF 20 var beygt til norðvesturs fljótlega eftir að honum hafði verið siglt út úr hafnarmynni á mikilli ferð. Það var svartaþoka og lítið skyggni. Mikil ferð nálægt landi eykur hættu á strandi.

Skýrsla 20.05.2025
Siglingasvið