Eldri skýrslur - RNU

Nýlegar slysa- og atvikaskýrslur:

Álftanesvegur austan Bessastaða

Slysið varð á Álftanesvegi skammt austan við afleggjara að Bessastöðum.

Skýrsla 16.12.2006
Umferðarsvið

Vesturlandsvegur við Þingvallaafleggjarann

Mazda fólksbifreið var ekið norður Vesturlandsveg síðdegis á sunnudegi. Slysið átti sér stað rétt norðan Þingvallaafleggjarans. Ökumaður fólksbifreiðarinnar ók yfir á rangann vegarhelming framan á Lexus jeppling sem kom úr gagnstæðri átt. Rétt áður en bílarnir skullu saman af miklu afli reyndi ökumaður jepplingsins að sveigja til hægri. Lenti fólksbifreiðin á vinstra framhorni hans. Snérist bifreiðin hálfan hring og staðnæmdist á miðjum veginum. Lexus jepplingurinn endaði um 16 metrum utan akbrautar, sjá mynd hér að neðan. Ekki sáust ummerki um hemlun á vettvangi.

Skýrsla 10.12.2006
Umferðarsvið

Stykkishólmsvegur

Ökumaður fólksbifreiðar ók að næturlagi áleiðis til Stykkishólms. Akstursaðstæður voru ekki góðar, ísing var á veginum og myrkur. Rétt um það leyti þegar hann ók framhjá afleggjaranum að flugvellinum missti hann stjórn á bifreiðinni í aflíðandi vinstri beygju. Rann bifreiðin yfir á rangan vegarhelming og þaðan útaf veginum með hægri hliðina á ljósastaur. Valt bifreiðin við það á hliðina og endaði á hjólunum um 10 metra frá ljósastaurnum, sjá afstöðumynd hér að neðan.

Skýrsla 08.12.2006
Umferðarsvið

Suðurlandsvegur við Sandskeið

Ökumaður VW-bifreiðar ók Suðurlandsveg áleiðis til Reykjavíkur í björtu veðri eftir hádegi á laugardegi. Bleyta var á veginum og umferð mikil. Í bifreiðinni voru tveir ungir karlmenn. Hafði glannalegt aksturslag ökumanns bifreiðarinnar vakið athygli vegfarenda. Á sama tíma var bifreið af gerðinni Toyota Corolla ekið áleiðis austur sama veg. Rétt fyrir slysið ók VW-bifreiðin á eftir vörubifreið. Vegna bleytu á vegi myndaðist austur af vatni fyrir aftan vörubifreiðina. Skyndilega fór VW-bifreiðin yfir á rangan vegarhelming og í veg fyrir Toyota-bifreiðina. Ekki sáust ummerki á vettvangi af hemlaförum en báðir ökumennirnir reyndu að afstýra árekstrinum með því að sveigja til suðurs. Var vinstra framhorn VW- bifreiðarinnar komið út af veginum þegar ökutækin rákust saman. Áreksturinn var mjög harður.

Skýrsla 02.12.2006
Umferðarsvið

Reykjanesbraut í Molduhrauni

Umferðarslysið varð á Reykjanesbraut við Molduhraun. Ölvaður ökumaður ók fólksbifreið á miklum hraða, frá Hafnarfirði austur Reykjanesbraut. Vegna vegavinnu við tvöföldun Reykjanesbrautar voru akreinarnar tvær í austurátt þrengdar í eina og umferð veitt yfir á vesturakreinina (ekið til Hafnarfjarðar). Lögregla hafði ítrekað gert athugasemdir við varúðarmerkingar vegna framkvæmdanna. Götulýsing var ekki virk við upphaf þrengingarinnar.

Skýrsla 11.11.2006
Umferðarsvið

Vopnafjörður við Laxdalstún

Slysið varð innanbæjar á Vopnafirði við svonefnt Laxdalstún. Samkvæmt framburði vitnis ók ökumaður á miklum hraða eftir Kolbeinsgötu og beygði niður til vinstri í átt að Sundabúð/elliheimili. Ökumaður missti stjórn á bifreiðinni í beygjunni, ók yfir á öfugan vegarhelming, utan í kantstein en þar á eftir um malbikað bílastæði við hlið bílageymslu. Ökumaður ók fram af bílastæðinu og hafnaði bifreiðin í sjónum.

Skýrsla 26.10.2006
Umferðarsvið

Köldukvíslarvegur

Ökumaður fór frá Hálendismiðstöðinni í Hrauneyjum áleiðis að ánni Köldukvísl, að talið er um miðja nótt. Malarvegur liggur frá þjóðvegi 26 að Köldukvísl og varð slysið 500 metra frá þjóðveginum eins og sýnt er á
mynd úr kortagrunni. Þar sem slysið varð liggur vegurinn í aflíðandi brekku, yfir vegræsi en þar tekur við beygja til vinstri. Ökumaður ók útaf veginum og valt bifreiðin ofan í vegræsið. Af ummerkjum að dæma hefur bifreiðin ekki oltið strax.

Skýrsla 21.10.2006
Umferðarsvið

Berufjörður

Útafakstur og velta

Skýrsla 19.10.2006
Umferðarsvið

Kjósarskarðsvegur við Þórufoss

Ökumaður jeppabifreiðar ók austur Kjósarskarðsveg. Skammt frá Þórufossi virðist hann hafa misst stjórn á bifreiðinni eftir að vindhviða skall á henni og lyfti upp að aftan. Lenti framhjól bílsins í þrígang í lausamöl vegaxla. Bifreiðin snérist á veginum, hafnaði útaf vinstra megin og valt. Ökumaður bifreiðarinnar notaði ekki bílbelti og kastaðist því út um framgluggann og lenti undir henni. Hann fórst á slysavettvangi. Farþegi í framsæti slasaðist lítillega, hann notaði bílbelti.

Skýrsla 16.10.2006
Umferðarsvið

Miklabraut

Karlmaður og kona gengu austur Miklubraut að nóttu til milli Kringlumýrarbrautar og Háaleitisbrautar. Voru þau á gangi hægra megin stofnbrautarinnar, ýmist á akbrautinni eða uppi á grasinu. Rétt vestan við gatnamót Miklubrautar og Háaleitisbrautar ók Kia fólksbifreið á konuna á akbrautinni. Við áreksturinn kastaðist konan upp í loftið og hafnaði á grasinu 12 metrum austan við árekstarstaðinn. Dánarorsök konunnar var höfuðáverkar.

Skýrsla 01.10.2006
Umferðarsvið