Mættir nefndarmenn voru Geirþrúður Alfreðsdóttir formaður, Ingi Tryggvason, Hilmar Snorrason, Pálmi K. Jónsson og Hjörtur Emilsson. Einnig voru á fundinum starfsmenn nefndarinnar, Jón A Ingólfsson rannsóknarstjóri og Einar Ingi Einarsson rannsakandi.

Á dagskrá fundarins voru alls 42 mál til umræðu og afgreiðslu. Í töflu I eru þau mál (26) sem voru lokaafgreidd á fundinum. Sex málum var frestað (tafla II) eða í frekari vinnslu og í töflu III eru mál (9) sem voru afgreidd sem drög og hafa verið send út til aðila þeirra til umsagnar. Hægt er að nálgast allar lokaskýrslur hér á vefnum. Athygli er vakin á breyttu fyrirkomulagi þar en nú er hægt að nálgast lokaskýrslurnar á PDF formi.

Næsti fundur verður 19. febrúar n.k.