Mættir nefndarmenn voru Geirþrúður Alfreðsdóttir formaður, Ingi Tryggvason, Hilmar Snorrason, Pálmi K. Jónsson og Hjörtur Emilsson. Einnig voru á fundinum starfsmenn nefndarinnar, Jón A Ingólfsson rannsóknarstjóri og Guðmundur Lárusson fulltrúi. (Þetta var síðasti fundur Guðmundar þar sem hann lætur af störfum vegna aldurs).

Á dagskrá fundarins voru alls 30 mál til umræðu og afgreiðslu. Í töflu I eru þau mál (19) sem voru lokaafgreidd á fundinum. (Hægt er að nálgast allar lokaskýrslur hér á vefnum). Fjórum málum var frestað eða ekki tekin fyrir (tafla II) og í töflu III eru mál (8) sem voru afgreidd sem drög og hafa verið send út til aðila þeirra til umsagnar. Sérstakar ábendingar eru í málum nr. 04114 og 07614.

Næsti fundur er 15. júní 2015.