Mættir nefndarmenn voru Geirþrúður Alfreðsdóttir formaður, Ingi Tryggvason, Hilmar Snorrason, Pálmi K. Jónsson og Hjörtur Emilsson. Einnig voru á fundinum starfsmenn nefndarinnar, Jón A Ingólfsson rannsóknarstjóri og Guðmundur Lárusson fulltrúi.  Geirþrúður sat hluta fundarins.
  
Á dagskrá fundarins voru 56 mál til afgreiðslu.  Í töflu I eru þau mál (46) sem voru lokaafgreidd á fundinum.  (Hægt er að nálgast allar lokaskýrslur hér á vefnum).  Í töflu II eru mál (10) sem voru afgreidd sem drög og hafa verið send út til aðila þeirra til umsagnar.

Næsti fundur verður 13. desember n.k.